Harry Bretaprins og Meghan Markle ganga í hjónaband eftir mánuð. Eftir brúðkaupið er gert ráð fyrir að þau fari í brúðkaupsferð en Travel + Leisure greinir frá því að verðandi hjónin ætli að ferðast til Namibíu eftir brúðkaupið.
Í Namibíu geta Harry og Meghan verið í friði og um leið átt ógleymanlegt frí. Lúxusdvalarstaðir í Namibíu eru sagðir svo afskekktir að fólk verður oft að leigja flugvél til þess að komast í safaríferðir. Harry og Meghan fóru einnig til Afríku áður fyrr, nánar tiltekið til Botswana þar sem þau tjölduðu undir stjörnu björtum himni.
Brad Pitt og Angelina Jolie héldu mikið upp á Namibíu þegar þau voru gift og eignuðust þau dótturina Shiloh í landinu. Skipti þá máli fyrir þau að geta fengið að vera í friði.