Myndir af berbrjósta prinsessu í dreifingu

Marie og Jóakim Danaprins voru í fríi í Frakklandi þegar …
Marie og Jóakim Danaprins voru í fríi í Frakklandi þegar myndirnar voru teknar. AFP

Myndir af Marie Danaprinsessu þar sem hún er ber að ofan í sólbaði eru til sölu hjá ljósmyndaskrifstofu. Danskir miðlar hafa fjallað um myndirnar en talsmaður konungsfjölskyldunnar segir erfitt að gera athugasemdir við myndir sem þegar eru komnar á netið. 

Eksta Bladet greinir frá því að myndirnar af Marie, sem er gift Jóakim Danaprins, séu teknar í fríi í Saint-Tropez í Frakklandi. Sýna þær hvar Marie liggur á maganum á sólbekk ber að ofan og liggur Jóakim við hlið hennar. Náði götuljósmyndari að smella af þegar hún reisti sig upp á olnbogana og betur sást í brjóst hennar. 

Talsmaður konungsfjölskyldunnar svaraði því ekki þegar blaðamaður Ekstra Bladet spurði hvort að eitthvað yrði gert til þess að fjarlægja myndirnar. 

Katrín hertogaynja lenti í svipuðu máli en mynd­irn­ar af henni birt­ust í tíma­rit­un­um Closer og ollu mikl­um usla í Bretlandi. Mynd­irn­ar voru tekn­ar með aðdrátt­ar­linsu af Katrínu á brjóst­un­um og einnig Vil­hjálmi að bera sól­ar­vörn á rass­inn á Katrínu. Fljót­lega eft­ir birt­ingu bönnuðu fransk­ir dóm­stól­ar frek­ari birt­ing­ar á mynd­un­um.

Marie prinsessa og and Jóakim Danaprins.
Marie prinsessa og and Jóakim Danaprins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant