Leikarahjónin Chris Pratt og Anna Faris tilkynntu um skilnað sinn síðasta sumar. Pratt hefur lítið tjáð sig um skilnaðinn síðan þá en opnaði sig í nýjustu útgáfu Entertainment Weekly.
„Að skilja er ömurlegt,“ sagði Pratt. „Þegar öllu er á botninn hvolft eigum við frábært barn sem á tvo foreldra sem elska hann mjög mikið. Og við erum að finna leið til þess að stjórna þessu og halda í vináttuna og halda áfram að vera góð við hvort annað.“
Þótt staðan sé ekki fullkominn segir Pratt þau bæði hafa það betra svona. Síðan þau tilkynntu um skilnað sinn hefur Pratt verið orðaður við nokkrar konur en Faris er í sambandi með kvikmyndatökumanninum Michael Barrett.