„Ó nei mamma, þú gleymdir buxunum“

Blake Lively á umhyggjusama dóttur.
Blake Lively á umhyggjusama dóttur. AFP

Dóttir leikkonunnar Blake Lively skilur ekki fatastíl móður sinnar en hún taldi mömmu sína hafa gleymt buxunum sínum þegar hún var á leiðinni út af hóteli í New York á dögunum. 

Lively er í New York og tískuvikan þar í borg í fullum gangi. „Ó nei mamma, þú gleymdir buxunum,“ kallaði dóttir hennar á hana þegar dyrnar á lyftunni voru að lokast. Lively var í stuttum kjól sem virtist frekar líta út fyrir að vera stór peysa en kjóll og áhyggjur dóttur hennar því vel skiljanlegar. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem stjörnubarn hefur áhyggjur af buxnaleysi móður sinnar. Í fyrra greindi Jennifer Lopez frá því að sonur hennar hefði beðið hana um að fara í buxur. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson