Afmælisgjafir þurfa ekki að vera flóknar og það veit Barack Obama. Eiginkona hans, Michelle Obama, fagnaði 54 ára afmæli sínu á þriðjudaginn en hún fékk gjöf frá forsetanum fyrrverandi þegar hún mætti til vinnu.
Michelle Obama deildi því á Instagram að á skrifstofunni beið hennar blómvöndur og kort frá eiginmanninum. „Þú ert besti vinur minn, stærsti aðdáandi minn,“ skrifaði hún um eiginmann sinn og sagðist aldrei fá leið á blómum og kortum.
A post shared by Michelle Obama (@michelleobama) on Jan 17, 2018 at 12:41pm PST