Stjörnumamman Kris Jenner hugsar vel um barnabörn sín bæði fædd og ófædd. Hún splæsti því í fimm nýja barnavagna frá Silver Cross fyrir að nýju barnabörnin.
Kim Kardashian eignaðist dóttur í vikunni með hjálp staðgöngumóðir og fær hún að minnsta kosti einn vagn, Khloé Kardashian á von á sínu fyrsta barni eftir þrjá mánuði og sagan segir að yngsta dóttirin Kylie Jenner eigi von á sínu fyrsta barni.
Það varð því að kaupa fimm vagna bæði sparivagna og þægilegri og meðfærilegri vagna. Í Bandaríkjunum þar Íslendingum þykir oft hagstætt að versla kosta vagnarnir fimm yfir eina miljón en TMZ greinir frá því að Jenner hafi bara borgað um átta þusund dollara eða rúmlega 800 þúsund krónur fyrir þá.
Systurnar eru því líklegar til að fara saman með í spassítúr með gamaldags Silver Cross barnavagn af gerðinni Balmoral.