Gat ekki bjargað Hoffman úr klóm fíkninnar

Þegar ferillinn fór á flug hallaði undan fæti hjá Philip …
Þegar ferillinn fór á flug hallaði undan fæti hjá Philip Seymour Hoffman. mbl.is/AFP

Mimi O'Donnell, kona og barnsmóðir leikarans Philip Seymour Hoffman, opnaði sig um dauða leikarans og fíkn hans í Vogue. O'Donnell áttaði sig á því í lokin að hún gæti ekki bjargað honum. 

Philip Seymour Hoffman kynntist O'Donnell árið 1999 þegar hún hannaði búninga fyrir leikrit sem hann var að leikstýra. Hoffman var þá hættur að neyta áfengis og fíkniefna en hann hafði neytt heróíns snemma á tvítugsaldrinum og fór í sína fyrstu meðferð 22 ára. 

O'Donnell sagði að líf hans hefði snúist að miklu leyti um edrúmennskuna. Viðvörunarbjöllur hringdu því þegar hann sagði henni að hann vildi prófa að fá sér drykk aftur. O'Donnell segir síðan að hann hafi smám saman byrjað að misnota lyfseðilsskyld lyf áður en hann byrjaði að nota heróín aftur hann lést einmitt af völdum of stórs eiturlyfjaskammts 46 ára að aldri. Hann reyndi að hætta, fór í meðferð en hann byrjaði aftur að nota. 

Haustið 2013 flutti Seymour út en borðaði enn með fjölskyldunni og fór með börnin sín í skólann. O'Donnell sagðist ekki geta stjórnað honum en sagði honum að hún væri til staðar. 

Í janúar 2014 var hann við tökur á Hungurleikunum, er hann kom aftur heim til New York sagði O'Donnell fólki í kringum sig að það þyrfti að fylgjast með honum. Hann byrjaði að nota fíkniefni aftur og nokkrum dögum síðar var hann dáinn. Hún segir að allur heimurinn hafi vitað það aðeins klukkutíma eftir að hún frétti af því. 

Mimi O'Donnell við útför Hoffman.
Mimi O'Donnell við útför Hoffman. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson