Jólasveinabúningurinn kvöl og pína

Tim Allen lék í The Santa Clause.
Tim Allen lék í The Santa Clause. ljósmynd/Imdb

Leikarinn Tim Allen hefur komið fólki út um allan heim í jólaskap með leik sínum í kvikmyndinni The Santa Clause. Hann viðurkennir þó í nýjum þætti um kvikmyndina að það hafi ekki verið eintóm sæla að leika jólasvein í myndinni. 

E! Online greinir frá því að það hafi tekið hann þrjá klukkutíma að fara í gervið enda þurfti hann skegg, hárkollu og fitubúning. Allen segir að það sé ekki hægt að neita því að þetta hafi verið óþægilegt. 

Hann heyrði út undan sér þar sem tvær manneskjur rifust um hversu lengi hann gæti verið í gallanum. „Hann getur ekki verið í þessu meira en sex klukkutíma af því að  húðin nær ekki að anda og þú færð sár út um allt,“ sagði annar aðilinn. Hinn virtist ekki kippa sér upp við smá sár og sagði að þau hyrfu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson