Reyna að minnka sjónvarpsgláp Georgs litla

Vilhjálmur og Katrín eru þrátt fyrir allt bara venjulegir foreldrar.
Vilhjálmur og Katrín eru þrátt fyrir allt bara venjulegir foreldrar. mbl.is/AFP

Georg prins er ósköp venjulegur krakki þrátt fyrir að vera þriðji í erfðaröð bresku krúnunnar. Vilhjálmur faðir hans upplýsti á mánudaginn að litli prinsinn væri hrifinn af Konungi ljónanna og hefði horft á hana nokkuð oft. 

Ungi prinsinn er þó ekki bara að viða að sér kóngaþekkingu frá ljónavinum sínum heldur horfir hann einnig á Lego-myndir. 

Vilhjálmur sagði að þau Katrín væru að reyna að halda honum frá skjánum en það væri erfitt. Hvaða foreldri kannast ekki við það?

Konungsfjölskyldan er þekkt fyrir að fylgjast vel með sjónvarpsþáttum. Hertogahjónin Vilhjálmur og Katrín hafa til að mynda lýst yfir hrifningu sinni af Game of Thrones og hafa séð alla þættina. 

Georg er hrifinn af Konungi ljónanna.
Georg er hrifinn af Konungi ljónanna. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant