Beckham brjáluð yfir vinskap eiginmannsins

David Beckham er mikið úti á lífinu á meðan Victoria …
David Beckham er mikið úti á lífinu á meðan Victoria Beckham sinnir vinnunni. mbl.is/AFP

Fatahönnuðurinn Victoria Beckham er sögð allt annað en sátt með vinskap eiginmanns síns við yfirstéttapíuna Lady Mary Charteris. Charteris er þekkt fyrir villt líferni og hefur David verið að eyða tíma með henni á meðan eiginkona hans vinnur. 

Lady Mary Charteris sem er af yfirstéttarættum og starfar sem fyrirsæta og plötusnúður var kynnt fyrir David á tónlistarhátíðinni Glastonbury í sumar. The Sun greinir frá því að síðan þá hafa þau djammað mikið saman. Victoria telur að Charteris hafi slæm áhrif á eiginmann sinn.

Hin þrítuga Charteris er gift tónlistarmanninum Robbie Furze. Hún viðurkenndi að hún hafði verið rúmföst í nokkra daga eftir að hafa tekið of vel á því í fimmtugsafmæli tónlistarmannsins Noel Gallagher á þessu ári.

Lady Mary Charteris giftist tónlistarmanninum Robbie Furze árið 2012.
Lady Mary Charteris giftist tónlistarmanninum Robbie Furze árið 2012. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant