Írski leikarinn Michael Fassbender og sænska leikkonan Alicia Vikander eru gengin í hjónaband samkvæmt E! Online. Hjónin kynntust árið 2014 en hafa allar götur síðan farið leynt með samband sitt.
Brúðkaupið átti sér stað á Ibiza um síðustu helgi þar sem hjónin fögnuðu með vinum og vandamönnum.
Hjónin kynntust árið 2014 við tökur á kvikmyndinni The Light Between Oceans. Í sumar bárust fréttir af trúlofun þeirra en eins og vant er vildu þau ekkert staðfesta.