Hélt upp á 59 ára afmælið sem sígauni

Madonna hélt upp á 59 ára afmælið með stæl.
Madonna hélt upp á 59 ára afmælið með stæl. AFP

Poppstjarnan Madonna átti 59 ára afmæli fyrr í vikunni og ákvað að halda upp á áfangann með stæl. 

Madonna mætti í afmælisveislu sína, sem haldin var á strendum Ítalíu, á hvítum hesti en það var sígaunaþema í afmælinu. E Online greinir frá þessu.

Í veislunni klæddist Madonna grænu silkipilsi, netasokkabuxum og fullt af skartgripum að hætti sígauna en hún var dugleg að birta myndum á Instagram-síðu sína frá veislunni.

Daginn eftir veisluna birti hún síðan mynd af sér fyrir framan altari þar sem hún sagðist þurfa að játa eitt - hún væri svolítið þunn. 

Á meðal gesta afmælisins voru fjögurra ára tvíburadætur hennar Stella og Esther sem virtust einnig skemmta sér konunglega.

Hér eru myndir og myndbönd frá afmælisveislunni en nú er bara að bíða og sjá hvernig hún heldur upp á sextugsafmælið á næsta ári. 

Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant