Poppstjarnan Jón Jónsson og tannlæknirinn Hafdís Björk Jónsdóttir hafa verið ástfangin í 15 ár en þau hittust fyrst á menningarnótt árið 2002.
„15 ár í dag síðan ég sá þessa í fyrsta skipti. Ást við fyrstu sýn,“ skrifaði Jón á Facebook-síðu sinni með fallegri mynd af eiginkonu sinni að njóta lífsins á Grikklandi.
Hjónin hafa verið óaðskiljanleg í þessi 15 ár en þau giftu sig í byrjun júlí og eiga saman tvö börn.