Fá tíu milljónir fyrir hvern þátt

Yngri kynslóð Modern Family-leikara fær nú tíu milljónir fyrir hvern …
Yngri kynslóð Modern Family-leikara fær nú tíu milljónir fyrir hvern þátt. skjáskot/Instagram

Barnaleikarar bandarísku sjónvarpsþáttaraðarinnar Modern Family sömdu um launahækkun og fá nú rúmlega tíu milljónir íslenskra króna fyrir hvern þátt. Deadline greinir frá þessu. 

Leikararnir, þau Sarah Hyland, Ariel Winter, Nolan Gould og Rico Rodriguez, sömdu um launahækkunina rétt eftir að eldri leikarar þáttaraðarinnar sömdu um launahækkun þar sem þau fá rúmlega 52 milljónir íslenskra króna fyrir hvern þátt.  

Yngstu leikarar þáttanna, sem ekki hafa náð 18 ára aldri, hafa enn ekki fengið að semja um launahækkun en þau gengu til liðs við þættina mun seinna en hinir leikararnir. 

Þáttaröðin er ein af vinsælustu grínþáttaröðum heims, rétt eftir The Big Bang Theory, og hefur unnið ótalmörg verðlaun en hún er til dæmis tilnefnd fyrir Emmy-verðlaunin sem eru haldin í september. 

Sjónvarpsstöðin ABC hefur framlengt gerð þáttanna til óákveðins tíma þar sem þeir ganga svo vel. 

Leikarar Modern Family.
Leikarar Modern Family. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson