Í nýrri mynd um líf Díönu prinsessu kemur fram að synir hennar, þeir Vilhjálmur og Harry, höfðu ekki séð móður sína í næstum því mánuð áður en hún dó í bílslysi í ágúst 1997 ásamt Dodi Fyed. En nú er þess minnst að 20 ár eru frá dauða Díönu.
Að sögn Daily Mail talar Harry um það í myndinni að þeir Vilhjálmur hafi misst af tíma með foreldrum sínum vegna þess að þeim var kastað á milli þeirra í kjölfar skilnaðarins. En Díana lést degi áður en hún átti að fá litlu prinsana sína til baka til sín.
Frétt af mbl.is: Iðrast síðasta símtalsins