Georg prins fjögurra ára (myndir)

Georg prins er verðandi konungur Bretlands. Hann er fjögurra ára …
Georg prins er verðandi konungur Bretlands. Hann er fjögurra ára gamall í dag. AFP

Litla sjarmatröllið Georg prins fagnar fjögurra ára afmæli í dag. Í tilefni dagsins sendi konungsfjölskyldan frá sér ljósmynd af drengnum. Á henni má sjá brosleitan verðandi konung Bretlands. 

Myndin er tekin af ljósmyndaranum Chris Jackson í Kensington-höll en þar býr Georg ásamt foreldrum sínum Vilhjálmi prins og Katrínu hertogaynju og systur sinni Karlottu. 

„Hertoginn og hertogaynjan deila þessari indælu mynd með gleði en í dag er haldið upp á fjögurra ára afmæli Georgs,“ segir í tilkynningu frá Kensington-höll. 

Litla fjölskyldan lauk í gær nokkurra daga opinberri heimsókn í Þýskalandi. Þar fékk Georg m.a. að fara um borð í þyrlu sem honum fannst mjög spennandi.

Heimsóknin hófst þann 19. júlí en þá lenti fjölskyldan í Berlín. 

Georg prins er þriðji í erfðaröðinni að bresku krúnunni á eftir föður sínum og afa. Langamma hans, Elísabet drottning, er fædd 21. apríl árið 1926 og er því 91 árs. Hún er enn við góða heilsu. Hún varð drottning þann 6. febrúar árið 1952 en var ekki krýnd formlega fyrr 2. júní árið 1953.

Karl Bretaprins, afi Georgs, er fæddur í nóvember árið 1948 og er því 68 ára. 

Hér að neðan má sjá myndasyrpu af afmælisbarninu.

Vilhjálmur leyfði Georg að fara um borð í þyrlu í …
Vilhjálmur leyfði Georg að fara um borð í þyrlu í heimsókn sinni í Airbus-verksmiðjurnar í Hamborg í gær. AFP
Öll í stíl. Í heimsókninni í Hamborg í gær var …
Öll í stíl. Í heimsókninni í Hamborg í gær var fjölskyldan öll í stíl. Meira að segja Vilhjálmur var með fjólublátt bindi. AFP
Georg tók fyrir eyrun af spenningi inni í þyrlunni.
Georg tók fyrir eyrun af spenningi inni í þyrlunni. AFP
Georg var ansi þreyttur er hann steig út úr flugvélinni …
Georg var ansi þreyttur er hann steig út úr flugvélinni í Berlín í vikunni. Þá hófst opinber heimsókn fjölskyldunnar í Þýskalandi. AFP
Georg hafði hlutverk í brúðkaupi móðursystur sinnar, Pippu, í lok …
Georg hafði hlutverk í brúðkaupi móðursystur sinnar, Pippu, í lok maí. H'er er hann fyrir miðri mynd. AFP
Georg og systir hans Karlotta í maí fyrir tveimur árum.
Georg og systir hans Karlotta í maí fyrir tveimur árum. AFP
Georg á rauðum stuttbuxum í júlí árið 2015.
Georg á rauðum stuttbuxum í júlí árið 2015. Chris Jackson
Katrín og Vilhjálmur sýna Georg nýfæddan við sjúkrahúsið þar sem …
Katrín og Vilhjálmur sýna Georg nýfæddan við sjúkrahúsið þar sem hann fæddist 22. júlí árið 2013. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson