Yfirvaraskeggið enn „tíu mínútur yfir tíu“

Yfirvaraskegg Salvadors Dali er óskaddað og er enn í laginu eins og vísar á klukku sem er tíu mínútur yfir tíu. Þetta kom í ljós þegar jarðnesk­ar leif­ar spænska lista­manns­ins voru grafn­ar upp í tengsl­um við málaferli um faðerni. 

Kona að nafni Pil­ar Abel seg­ir Dali vera föður sinn þar sem hann hafi átt í ástar­sam­bandi við móður hennar árið 1955. Abel höfðaði mál og krafðist þess að fá staðfest að hún sé dótt­ir lista­manns­ins.

„Þetta var eins og kraftaverk [...] yfirvaraskeggið hans var „tíu mínútur yfir tíu“ og hárið var óskert,“ segir Narcis Bardalet, sérfræðingur sem var viðstaddur uppgröftinn. Erfðasýni voru tekin úr neglum, hári og beinum listamannsins. 

Ef það næst að sanna að Abel sé einkabarn Dalis gæti hún átt tilkall til 25% af auðlegðinni sem hann skildi eftir sig og er í umsjón Dalistofnunarinnar á Spáni. Hins vegar gæti hún átt von á stórum reikningi ef rangt reynist, að sögn lögfræðings stofnunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant