Amma og afi leikarans Zac Efron fylgjast vel með barnabarni sínu og fóru saman á nýjustu mynd hans, Strandverði, á hádegissýningu á laugardaginn.
Amman og afinn voru krúttleg þegar þau stilltu sér upp fyrir framan bíóið bæði í mynstruðum skyrtum. En leikarinn birti mynd af þeim á Instagram síðu sinni þar sem hann sagðist elska þau og gæti ekki beðið eftir að tala við þau eftir að myndinni lyki.
Auk Efron leika Dwayne Johnson og Priyanka Chopra í myndinni sem byggir á Strandvarða-þáttunum sem gerðu Pamelu Anderson og David Hasselhoff fræg.