Rekin eftir að hafa sofið hjá Orlando Bloom

Viviana Ross þurfti að taka pokann sinn hjá Chiltern Firehouse …
Viviana Ross þurfti að taka pokann sinn hjá Chiltern Firehouse eftir nótt með leikaranum Orlando Bloom. skjáskot/Instagram

Hin rúmenska Viviana Ross kom til Breltands fyrir tveimur mánuðum til þess að láta leikkonudrauminn rætast. Hún var því ekki búin að vera lengi í London þegar hún var rekin úr vinnu sinni hjá Chiltern Firehouse fyrir að sofa hjá Orlando Bloom. 

Ross og Bloom náðu saman þegar hún afgreiddi hann á barnum hjá Chiltern Firehouse og eftir vakt fór hún upp á herbergi til hans og eyddi nótt með leikaranum. Því miður fyrir Ross fann yfirmaður hennar hana í herbergi Bloom daginn eftir en þá var leikarinn farinn.

Orlando Bloom.
Orlando Bloom. mbl.is/AFP

Samkvæmt The Sun er Chiltern Firehouse bar og hótel sem er þekkt afdrep stjarnanna í London. En svo virðist sem það sé bannað að eiga í nánum samskiptum við viðskiptavini og því fór sem fór hjá Ross. Heimildamaður tengdur Ross segir hana þó ekki sjá eftir nóttinni. 

Þegar Bloom fékk fregnir af uppsögninni á hann að hafa fengið númer Ross hjá Chiltern Firehouse og hringt í Ross til að biðjast afsökunar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant