Með Sigur Rós í Disney Hall í Los Angeles

Sigur Rós lék ásamt Fílharmóníusveit Los Angeles á þrennum tónleikum í Disney Hall í Los Angeles fyrr í mánuðinum. mbl.is fylgdist með undirbúningi fyrstu tónleikanna 13. apríl og ræddi við strákana áður en þeir stigu á svið. Þeir virtust sallarólegir yfir öllu umstanginu en undirbúningur tónleikanna hafði staðið yfir um nokkurra mánaða skeið.

Í gær birtist umfjöllun um tónleikana sjálfa í Morgunblaðinu sem fylgir hér.  

Engin vonbrigði í Disney Hall
 
Andrúmsloftið var frekar hátíðlegt en þó afslappað í Disney Hall, heimili Fílharmóníusveitar Los Angeles-borgar, þegar Sigur Rós steig þar á svið ásamt húshljómsveitinni fyrr í mánuðinum. Í raun var fátt sem minnti mann á ys, þys, glys og glamúr stórborgarinnar fyrir utan þetta magnaða hús sem erfitt er að lýsa með orðum. Magnaður arkitektúr Franks Gehry skapaði umgjörð um tónlistina sem jafnast á við það allra besta sem gerist á þessari plánetu sem við búum öll á. Augljóst var að í vændum var viðburður sem var vel þess virði að skella sér í 7.000 km flug fyrir.

Átta tónskáld höfðu gert útsetningar á lögum Sigur Rósar fyrir viðburðinn, þar af tvö íslensk: Páll Ragnar Pálsson og Daníel Bjarnason. Í samtali við þá Georg og Jónsa fyrir tónleikana kom fram að hljómsveitin hefði í raun gefið þeim lausan tauminn hvað útsetningarnar varðaði. Tónlist Sigur Rósar hefur alltaf verið sinfónísk og mikil um sig en frá því að Kjartan sagði skilið við sveitina hefur hljómurinn verið hrárri og grófari þannig að þetta var nokkurs konar afturhvarf til klassískari hljóms Sigur Rósar. Strákarnir virtust þó ekki vera mikið að velta þessu öllu saman fyrir sér fyrir tónleikana, hvorki umfangi stundarinnar né nokkru öðru. Fjórar Stradivarius-fiðlur á sviðinu... hverjum er ekki sama? Örugglega er slík nálgun fyrir bestu því líklega hefði sú tilhugsun ein og sér dugað til að buga ófáa rokkarana.

Nýtt lag: Á, var fyrsta lagið sem mun vera af plötu sem sveitin er að vinna að. Fáir hafa náð að lýsa tónlist Sigur Rósar með orðum án þess verða of háfleygir og á köflum bara kjánalegir. Því ætla ég bara að láta það duga að segja að það hafi verið fallegt og að útsetningin hafi verið smollið vel við. Lesendur geta spreytt sig á lýsingarorðunum sjálfir því hægt er að streyma tónleikunum á netinu. Þannig liðu tónleikarnir áfram, Fílharmónían, undir stjórn Esa-Pekka Salonen, víkkaði út hljóm Sigur Rósar án þess að taka neitt frá henni sem er yfirleitt hættan í svona samstarfi. Tónskáldin voru greinilega rétt valin í samstarfið. Starálfur af Ágætis Byrjun var óumdeilanlega best heppnaða útsetningin enda eitt af sterkari lögum sveitarinnar sem var útsett vel á sínum tíma. Owen Pallett átti heiðurinn af þeirri útsetningu sem hefði auðveldlega getað valdið vonbrigðum.

Salurinn er þannig byggður að setið er í kringum sviðið og ég horfði niður á hlið hans. Hljómurinn þar var ekki jafnkraftmikill og sá sem ég heyrði í hljóðprufunum fyrir framan sviðið fyrr um daginn. Hins vegar er nándin við tónlistarmennina í Disney Hall mikil og þrátt fyrir að á þriðja þúsund manns væru í salnum fannst manni eins og það væru bara nokkur hundruð manns. Áhorfendur voru vel með á nótunum enda seldist upp á tónleikana á nokkrum sekúndum. Þegar komið var að Festival af Með suð í eyrum... var gaman að sjá að margir þeirra, einhverjir af ótalmörgum Íslendingum í salnum, gátu ekki setið á sér lengur og spruttu úr sætum sínum, dönsuðu og hristu sig í mikilli gleði. Fallegt. Þetta kveikti líka í sveitinni. Eftir að hafa séð Sigur Rós spila margoft á tuttugu ára tímabili hef ég aldrei séð Jónsa smita orku af þessu tagi frá sér, öskraði og kallaði út í salinn sem skilaði sér mögnuðu andrúmslofti í salnum. Rokkstjörnutaktar af góðu gerðinni.

Eftir hlé dró Fílharmónían sig í hlé og gaf Sigur Rós eftir sviðið og Sæglópur, Ný Batterí, Vaka, E-Bow, Kveikur og Popplagið fengu að hljóma hjá tríóinu. Dýnamíkin í hljómsveitinni hefur náttúrulega breyst við 25% fækkun. Eins og gerist gjarnan í slíkum tilfellum fá þeir sem eftir eru meira pláss til að láta ljós sitt skína og það á sannarlega við um hvað hefur gerst hjá Sigur Rós. Orri hefur alltaf verið afburðatrommari en það er einstaklega gaman að fylgjast með honum þessa dagana og hann fór algerlega á kostum í Disney Hall, hrár krafturinn í honum skerpir meira á fegurð tónlistarinnar nú en áður. Líklega eru þeir ekki margir sem hafa rifið sig úr að ofan í Disney Hall til þessa. Eins gaman og það var að sjá strákana spila með Fílharmóníunni er ekki hægt að toppa þá eina síns liðs og hámark tónleikanna var án vafa þegar þeir voru þrír á sviðinu. Magnað hverju er hægt að áorka þegar nokkrir krakkar taka sig saman og stofna hljómsveit.
Hér er hægt að horfa á tónleikana frá 14. apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler