Söngkonurnar úr stúlknasveitinni Destiny's Child hittust allar nýverið þegar Kelly Rowland fagnaði útgáfu bókarinnar Whoa Baby.
Bókin er unnin af söngkonunni Kelly Rowland og kvensjúkdómalækninum Tristan Emily Bickman og fara þær yfir algengar spurningar sem nýjar mæður hafa. Hugmyndin að bókinni kviknaði eftir að Rowland eignaðist sitt fyrsta barn.
Það er því heldur betur barnalán hjá stúlknahljómsveitinni en Rowland eignaðist sitt fyrsta barn 2014 og Beyoncé á fimm ára gamla dóttur og er ólétt af tvíburum. Michelle Williams á hins vegar ekki barn.