Samvera, áreiti og jákvæð samskipti

Samvistir foreldris og barns, þar sem truflandi áreitum úr umhverfinu …
Samvistir foreldris og barns, þar sem truflandi áreitum úr umhverfinu er haldið í lágmarki, eru börnum mjög mikilvægar. mbl.is/Thinkstockphotos

Heilsuvera, samstarfsvefur Heilsugæslunnar og Landlæknisembættisins er stútfullur af góðum ráðum fyrir foreldra og aðra aðstandendur barna. Þó svo margir foreldrar þekki þessa þætti er góð vísa aldrei of oft kveðin enda áreiti hversdagsins gríðarlegt fyrir flestar fjölskyldur; vinna, skóli, tómstundir, líkamsrækt, afmæli, ytri fjölskyldan, ósætti, peningar og ekki nægir peningar, drasl og þrif og bílar sem bila. Endalaust áreiti og vesen; þannig er lífið stundum fyrir fjölskyldur. Þá má ekki gleyma að einfaldar og rólegar samverustundir eru öllum mikilvægar; yngstu börnunum sem þurfa frið til að þroskast en líka unglingum og ungmennum sem oft eru undir gríðarlegri pressu sem getu valdið kvíða og þunglyndi. Samverustundir fjölskyldunnar einfaldlega heilandi. En hér er Heilsuveru gefið orðið: 

______________________________________________________

Samvistir foreldris og barns, þar sem truflandi áreitum úr umhverfinu er haldið í lágmarki, eru börnum mjög mikilvægar. Notaleg samvera ýtir undir sterkari tengsl og jákvæð samskipti milli foreldra og barna. Með henni miðla foreldrar því til barna sinna að þau séu elskuð og virt.

Foreldrar hafa auðvitað ekki tækifæri til að veita börnum óskipta athygli öllum stundum, enda þurfa þau líka að læra að vera sjálfum sér næg og þróa sjálfstæðan leik í samræmi við aldur og þroska. En það er öllum börnum mikilvægt að fá reglulegar samverustundir með foreldri sem eru helgaðar þeim eingöngu, helst daglega ef um ung börn er að ræða. Slíkar stundir er upplagt til að nýta til að æfa jákvæð samskipti og virka hlustun.

Sem dæmi um það sem hægt er að gera í samverustundum með yngri börnum má nefna að:

  • Lesa fyrir barnið eða láta það lesa fyrir sig
  • Tala við barnið, leyfa því að stýra samræðunum og stilla sig um að gefa ráð
  • Slaka á með barninu, kannski bara að setjast niður á bekk í almenningsgarði eða við fjöruna
  • Spila við barnið eða fara í leiki, allt frá því að spila lúdó og ólsen-ólsen til þess að fara í fótbolta í garðinum
  • Elda eða baka með barninu
  • Hjálpa barninu við að læra heima
  • Hjálpa barninu að undirbúa afmælisveislu
  • Hjálpa barninu við að útbúa afmælisgjöf handa hinu foreldrinu
  • Haldast í hendur eða halda utan um barnið á meðan verið er að horfa saman á eitthvað spennandi eða skemmtilegt.
  • Fara út að leika með barninu.
    mbl.is/Thinkstockphotos

Þegar börnin eldast breytast samverustundirnar en þær halda áfram að vera mikilvægar sem dæmi um samverustundir foreldra og eldri barna má nefna:

  • Taka virkan þátt í tómstundanámi og gefa sér tíma til að hlusta á unglinginn tala um glímu sína við tómstundanámið.
  • Taka virkan þátt í íþróttaiðkun unglingsins. Gefa kost á sér í foreldraráð og stjórnir og vera virkur þátttakandi en ekki aðeins áhorfandi þó það sé líka mikilvægt.
  • Njóta útiveru og náttúrunnar saman. Sem dæmi má nefna gönguferðir, hjólatúrar og útilegur. Kennið börnunum að njóta náttúrunnar og uppgötva hvað þar er að finna. Rannsakið saman og skoðið. Til er fjöldinn allur af skemmtilegum handbókum bæði um náttúrufar, gróður, fugla, steina og gönguleiðir sem fá má lánaðar á bókasafninu eða kaupa. Það gefur göngutúrnum allt aðra merkingu að þekkja umhverfi sitt.
  • Notið hugmyndaflugið og þekkingu ykkar á barninu til að skipuleggja samverustundir fjölskyldunnar.

    mbl.is/Thinkstockphotos


Fjölskyldan á mbl.is er í samstarfi við Heilsuveru. Grein þessa má finna hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert