100 þúsund Crossland X seldir

Eitt af nýjustu útspilum Opel, Crossland X, hefur heldur betur slegið í gegn á Evrópumarkaði. Þar hafa yfir 100 þúsund bílakaupendur tryggt sér eintak nú þegar.

Bíllinn var frumsýndur hérlendis nú á dögunum í nýjum sýningarsal Opel og SsangYong á Krókhálsi 9.

„Crossland X gegnir lykilhlutverki í nýrri markaðssókn okkar á alþjóðavísu,“ segir Peter Kusbert, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Opel, í tilkynningu.

„Crossland X ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum í nýju X bílalínunni frá Opel, Mokka X og Grandland X, sem allir verða fáanlegir á öllum mörkuðum okkar á árinu, gegna stóru hlutverki í vexti Opel til framtíðar,“ segir Peter. 

Samkvæmt tilkynningu frá Bílabúð Benna hefur Crossland X fengið svo góðar viðtökur að hann seldist upp í febrúar. Mars sendingin er langt á veg komin og byrjað er að selja bíla til afhendingar í apríl.

„Crossland X er greinilega að svara þörfum margra Íslendinga og nú um helgina munum við svo frumsýna Mokka X á Krókhálsi og verður spennandi að sjá viðbrögðin,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.

mbl.is