4X4 bílasýning hjá Suzuki

Öll 4X4 fjölskylda Suzuki verður til sýnis hjá Suzuki bílum …
Öll 4X4 fjölskylda Suzuki verður til sýnis hjá Suzuki bílum hf. næstkomandi laugardag í sýningarsalnum við Skeifuna 17. Ljósmynd/Suzuki

Suzuki bílar hf. munu kynna alla 4x4 fjölskyldu Suzuki á laug­ar­dag­inn kemur, þann 20. janúar, á milli kl. 12:00 og 16:00 í sýningarsal fyrirtækisins í Skeifunni 17. Eru allir velkomnir og léttar veitingar í boði, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. 

Fjórhjóladrifnir Suzuki hafa löngum þótt henta íslenskum aðstæðum vel og Suzuki selur 4x4 bifreiðar frá Suzuki í miklu úrvali, ýmsar stærðir og gerðir. Fjórhjóladrifstækni Suzuki, ALLGRIP 4x4, verður í brennidepli en hún skilar í senn veggripi við erfiðar aðstæður og meiri sparneytni en áður. Fjórhjóladrifskerfið býður upp á fjórar mismunandi aksturstillingar, sjálfvirka stillingu, sportstillingu, akstur í snjó og loks læsingu. Er stillingunum stjórnað með einföldum þrýsti-og snúningsrofa í mælaborði.

mbl.is