2018 verður ár X-gerða BMW

Frá og með 2020 verður BMW X3 einnig boðinn sem …
Frá og með 2020 verður BMW X3 einnig boðinn sem hreinn rafmagnsbíll.

BMW Group hefur kynnt mikla sókn á bílamarkaðnum. Í ræðu sem Harald Krüger, stjórnarformaður fyrirtækisins hélt á blaðamannafundi í München kom m.a. fram að fyrir árslok 2018 verði fyrirtækið búið að kynna fjörutíu nýjar og uppfærðar gerðir BMW og MINI frá og með 1. janúar á þessu ári.

Framundan er einnig mikil aukning í úrvali hreinna rafbíla auk þess sem sjálfkeyrandi bílar eru svo hluti af sókninni sem segja má að hafi í rauninni byrjað með frumsýningu nýjustu kynslóðar lúxusbílsins BMW 5 Series í upphafi ársins.

„Nú þegar eru meira en 300 þúsund BMW 5 komnir á götuna síðan sala hófst á nýja bílnum. Við erum sem stendur í forystu á þessum hluta markaðarins og fylgjum þeim árangri eftir með nýjum M5 sem verður hraðskreiðari en M760 Li sem hingað til hefur verið hraðskeiðasti fjöldaframleiddi bíll BMW,“ sagði Krüger meðal annars. Meðal annarra nýjunga sem kynntar hafa verið á árinu eru 1 Series, 2 Series Coupé og Convertible, 4 Series, nýr 6 Series Gran Turismo og ný kynslóð hins vinsæla X3. Ennfremur er von á X2 fljótlega.

„Við höfum selt meira en 200 þúsund bíla með rafmótor síðan 100% rafbíllinn i3 kom á markað. Þar af eru meira en 90 þúsund eingöngu með rafmótor og framvegis verða þeir bílar merktir bókstafnum i ásamt gerðarnafni sínu. Þannig mun X1 fá heitið iX1 þegar hann kemur á markað sem 100% rafbíll og svo verður um allar gerðir allt til iX9,“ sagði Krüger sem gat þess jafnframt að 2018 verði ár X-gerða BMW.

BMW Group ætlar sér ennfremur stóra hluti á dýrari enda lúxusbílamarkaðnum þar sem Krüger segir að sé hinn sanni heimavöllur fyrirtækisins. Á þeim markaði munu nokkrar gerðir spila aðalhlutverkið. Þeirra á meðal eru nýr Rolls-Royce Phantom, BMW i8 Roadster, 8 Series Coupé, BMW M8 og X7. Krüger segir þessa bíla munu leika aðalhlutverkið í aukinni arðsemi BMW Group auk X-línunnar í heild, en alls hefur BMW selt meira en 5,5 milljónir X-bíla frá því að þeir voru fyrst kynntir árið 1999. Þriðji hver bíll sem fyrirtækið selur í dag er X og fer salan vaxandi á öllum helstu mörkuðunum.

mbl.is