Sváfu í tjaldi við Laugaveginn

MINI Countryman Plug-In-Hybrid klár fyrir næturgistinguna með tjaldið á toppnum.
MINI Countryman Plug-In-Hybrid klár fyrir næturgistinguna með tjaldið á toppnum.

Nýr MINI Countryman Plug-In-Hybrid var forkynntur í vikunni sem leið á veitingastaðnum Sumac við Laugarveg.

Forkynningargestum var kynnt sú nýjung að þeim sem yrði fyrstur til að ákveða sig stæði til boða að bóka gistingu í MINI topptjaldi sem sýnt var með bílnum. Bíllinn og topptjaldi hafði verið skráð á gistisíðunni Airbnb sem gistimöguleiki aðeins þessa einu nótt.

Þeir félagar Brynjólfur Löve Mogenson og Heiðar Logi tóku áskoruninni, bókuðu gistinguna á Airbnb og gistu í MINI tjaldinu yfir nóttina þrátt fyrir að Brynjólfur hafi átt pantað flug til Kaupmannahafnar og því þurft að vakna kl. 04:00. Nóttin var að sögn þeirra félaga erilsamari en þeir áttu von á en það kom ekki að sök því þeir eru báðir alvanir útivistarmenn sem ekki víla fyrir sér að gista í tjaldi hvar og hvenær sem er. Þegar starfsmenn True North og BL komu morguninn eftir til að taka saman og ganga frá bíl og tjaldi var Brynjólfur floginn til Kaupamannahafnar en Heiðar Logi svaf vært í tjaldinu og lét vel af upplifuninni.

Félagarnir Brynjólfur Löve Mogenson og Heiðar Logi tóku áskoruninni, bókuðu …
Félagarnir Brynjólfur Löve Mogenson og Heiðar Logi tóku áskoruninni, bókuðu gistinguna á Airbnb og gistu í MINI tjaldinu yfir nóttina.
Þannig leit skráningin út á AirBNB, tilbúin fyrir fyrsta aðila …
Þannig leit skráningin út á AirBNB, tilbúin fyrir fyrsta aðila sem væri tilbúinn að taka áskoruninni.
mbl.is