Nýr Micra kynntur á laugardag hjá BL

Nýr og gjörbreyttur Nissan Micra verður kynntur formlega hjá BL á laugardag milli kl. 12 og 16. Hann var sérstaklega hannaður með þarfir Evrópubúa í huga ólíkt fyrri gerðum sem einnig voru ætlaðar Asíumörkuðum og aðallega framleiddar í Japan þar sem yfir sjö milljónir eintaka hafa verið framleiddar frá árinu 1983.

Evrópuhönnun og –framleiðsla á Micra gerir að verkum að nýi bíllinn er óþekkjanlegur frá fyrri gerðum enda fóru hönnuðirnir slíkum höndum um bílinn utan og innan að hann á fátt eða ekkert sameiginlegt með fyrirrennurum sínum. Hins vegar leynir ættarsvipurinn sér ekki með öðrum nýjum bílum frá Nissan, hvort sem litið er til Pulsar, X-Trail eða mest selda og vinsælasta bíl Nissan, sportjeppans Qashqai.

Nissan hefur búið Micra ýmsum tæknilausnum sem auka í senn aksturseiginleika, -ánægju og öryggi ökumanns og farþega. Auk þess veitir Nissan kaupendum Micra nú mjög fjölbreytta möguleika til að hanna samsetningu bílsins í samræmi við eigin smekk, bæði í ytri litasamsetningum og samsetningum farþegarýmis auk þess sem mjög fjölbreytt úrval aukahluta er í boði eins og hægt er að kynna sér nánar í sérstökum bæklingi hjá BL.

Vél, búnaður og verð

BL býður Micra í tveimur meginútfærslum þar sem í báðum tilfellum má velja um 900cc 90 hestafla bensínvél eða 1500cc 90 hestafla dísilvél, í báðum tilfellum við beinskiptan gírkassa. Hins vegar er hægt að velja um þrjár útbúnaðargerðir, grunngerðina Visia+, miðgerðina Acenta og loks Tekna sem er sú gerð sem best er búin frá framleiðanda.

Grunngerðin Visia+ með 900cc, 90 hestafla bensínvélinni kostar kr. 2.190.000. Meðal staðalbúnaðar eru Led-dagljósabúnaður og Halogenaðaljós, viðvörunarkerfi um loftþrýsting í dekkjum, loftkæling, hámarkshraðastilling og neyðarhemlun. Dýrasta útgáfan, Tekna með 1500cc 90 hestafla dísilvélinni kostar kr. 2.890.000. Í þeirri útgáfu er staðalbúnaður mun meiri en í grunngerðinni, m.a. 17“ álfelgur í stað 15” stálfelga, lykillaust aðgengi, bakkmyndavél með bakkskynjurum og fjórum myndavélum sem bjóða upp a 360° útsýni yfir umhverfi bílsins. Þá er tekna einnig búinn regnskynjara, sjálfvirkri hæðarstillingu á aðalljósum, rafdrifinni aðfellingu útispegla, dökkum afturrúðum, Nissan connect 7“ snertiskjá sem samþættist snjallsímum.

Loks má nefna að Tekna er búinn svokölluðum Safety Shield öryggisskyldi frá Nissan sem inniheldur akreinavara, blindhornsaðvörun og nálgunarviðvörum með umhverfisskynjun allan hringinn.

mbl.is