Formlega gengið frá kaupunum á Vísi

Vísir hf. Grindavík er dótturfélag Síldarvinnlsunnar.
Vísir hf. Grindavík er dótturfélag Síldarvinnlsunnar. mbl.is/Sigurður Bogi

Fullveldisdaginn, 1. desember síðastliðinn, gengu kaup Síldarvinnslunnar hf. á Vísi hf. í gegn. Margt bendir til að Síldarvinnslan mun í auknum mæli beina bolfiskafla sínum til vinnslu í Grindavík. Ákveðið var að kaupa félagið í júlí en Samkeppniseftirlitið þurfti að taka afstöðu til kaupanna og samþykkti stofnunin kaupin um miðjan nóvember síðastliðinn.

Nú bíða spennandi verkefni er snúa að því að samþætta starfsemi félaganna á sviði bolfiskveiða og -vinnslu, er haft eftir Gunnþóri B. Ingvasyni, forstjóra Síldarvinnslunnar, í tilkynningu á vef félagsins. Hann segir jafnframt ljóst að Vísir sé vel rekið fyrirtæki og mun það styrkja Síldarvinnslusamstæðuna með ótvíræðum hætti.

„Vísir var fjölskyldufyrirtæki og við komin á þau tímamót að horfa til framtíðar með rekstrarformið. Við teljum að það hafi verið mjög skynsamlegt að fá hlutabréf í Síldarvinnslunni í skiptum fyrir fyrirtækið og taka þannig þátt í áframhaldandi uppbyggingu bolfiskhlutans hér í Grindavík,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, í tilkynningunni.

„Það er borin mikil virðing fyrir Síldarvinnslunni og menn treysta henni í hvívetna. Innan Síldarvinnslunnar og í eigendahópi hennar er að finna landsliðið í íslenskum sjávarútvegi. Þar er mikil reynsla og þekking. Það er tilhlökkunarefni að hefja störf innan samstæðu Síldarvinnslunnar og við lítum framtíðina björtum augum,“ fullyrðir hann.

Afli til Grindavíkur

Ufsi sem Bergur VE, togari gerður út af dótturfélagi Síldarvinnslunnar, landaði í Vestmannaeyjum 15. nóvember síðastliðinn var fyrsti aflinn sem skipið hefur skilað til vinnslu hjá Vísi. Gera má ráð fyrir að skip Síldarvinnslunnar muni í auknum mæli skila afla til vinnslu í Grindavík, sérstaklega vegna þess hve skorinn skammtur er af hráefni um þessar mundir eftir umfangsmiklar kvótaskerðingar síðustu ára.

Vísir rekur bæði saltfiskvinnslu og frystihús í Grindavík auk þess að gera út sex fiskiskip. Floti fyrirtækisins samanstendur af þremur stórum línubátum, einu togskipi og tveimur krókaaflamarksbátum. Hjá hjá fyrirtækinu starfa um 250 manns, 100 á sjó og 150 í landi.

Þá fylgir kaupunum einnig töluverðar aflaheimildir og hefur Vísir farð með 5,41% af úthlutuðum kvóta í þorski, 6,14% í ýsu og 1,73% í ufsa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 696 kg
Samtals 696 kg
20.4.24 Silver Crystal (LAD08) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 163.969 kg
Samtals 163.969 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 294 kg
Ýsa 283 kg
Steinbítur 229 kg
Keila 38 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 848 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 1.484 kg
Þorskur 1.163 kg
Samtals 2.647 kg
20.4.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 696 kg
Samtals 696 kg
20.4.24 Silver Crystal (LAD08) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 163.969 kg
Samtals 163.969 kg

Skoða allar landanir »