Öðrum af tveimur verklegum stjórnendum rækjuverksmiðjunnar Kampa á Ísafirði hefur verið sagt upp störfum og vísað úr stjórn félagsins. Er umræddur aðili sakaður um að hafa vísvitandi gefið upp ranga mynd af fjárhagsstöðu verksmiðjunnar. Jón Guðbjartsson, stjórnarformaður Kampa, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.
Fyrr í dag var haldinn stjórnarfundur þar sem stjórnarmanninum, sem séð hafði um fjármál fyrirtækisins, var vísað úr stjórn. Honum hafði verið sagt upp störfum hjá Kampa fyrir jól. Jón Guðbjartsson sagði í samtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni, að bókhald félagsins hefði verið byggt á skáldskap um nokkurra ára skeið.
Samkvæmt heimildum blaðsins skeikaði fjárhagsstöðunni um hundruð milljóna króna. Aðspurður segir Jón að ákveðið hafi verið að vísa umræddum aðila úr stjórn félagsins í dag. „Það var eðlilegt enda getur hann ekki verið í stjórninni þegar við ætlum að ræða hvernig við snúum okkur í hinu eða þessu.“
Jón segist hafa fengið lögfræðilega leiðbeiningu þess efnis. Í næstu viku verður haldinn hluthafafundur þar sem ákvörðun verður tekin um hver kemur inn í stjórnina.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót | |
---|---|
Ufsi | 1.297 kg |
Skarkoli | 1.198 kg |
Karfi | 226 kg |
Ýsa | 210 kg |
Langa | 136 kg |
Þykkvalúra | 79 kg |
Þorskur | 74 kg |
Sandkoli | 16 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Skötuselur | 8 kg |
Samtals | 3.257 kg |
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 3.980 kg |
Skarkoli | 1.183 kg |
Þorskur | 328 kg |
Sandkoli | 195 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 5.768 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót | |
---|---|
Ufsi | 1.297 kg |
Skarkoli | 1.198 kg |
Karfi | 226 kg |
Ýsa | 210 kg |
Langa | 136 kg |
Þykkvalúra | 79 kg |
Þorskur | 74 kg |
Sandkoli | 16 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Skötuselur | 8 kg |
Samtals | 3.257 kg |
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 3.980 kg |
Skarkoli | 1.183 kg |
Þorskur | 328 kg |
Sandkoli | 195 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 5.768 kg |