Stjórn Iceland Seafood International hefur ákveðið að félagið hefji undirbúning að skráningu á aðalmarkað Kauphallar Íslands á næsta ári. Félagið hefur verið skráð á First North-markað síðan 25. maí árið 2016 en markmiðið með skráningu félagsins á þeim tíma var að breikka eigendahópinn og stuðla að aukinni sókn félagsins.
„Það er rökrétt skref fyrir félagið sem stækkað hefur mikið síðustu árin að hefja undirbúning á skráningu félagsins á aðalmarkað. Með því fjölgar í hópi hluthafa og á sama tíma styður það við áframhaldandi vöxt félagsins,“ segir Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood International, í tilkynningu.
Í dag var einnig gefin út uppfærð afkomuspá félagsins fyrir 2018 en afkoman er betri en fyrri spá gerði ráð fyrir.
Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta 2018 (e. normalized PBT for 2018) er áætlaður €6,8m - €7,3m samanborið við €6,1m - €6,6m í fyrri spá. Hagnaður af reglulegri starfsemi á heilsársgrunni fyrir skatta 2018 (e. proforma normalised PBT for 2018)er áætlaður €10,4m - €10,9m samanborið við €9,6m - €10,6m í fyrri spá.
„Áætlanir okkar um að styrkja starfsemi félagsins hafa gengið eftir á árinu. Við höfum fjárfest í fyrirtækjum í virðisaukandi starfsemi bæði á Írlandi og á Spáni en afkoma virðisaukandi eininga samstæðunnar hefur verið umfram áætlanir. Okkar skýra stefna, góða starfsfólk og sterku samstarfsaðilar hafa lagt grunn að áframhaldandi kröftugum vexti félagsins,“ bætir Helgi Anton við.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |