Smíði nýrrar Vestmannaeyjar og Bergeyjar fyrir útgerðarfélagið Berg-Hugin gengur samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að skipin verði afhent útgerðinni í maí og júní á næsta ári, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar, móðurfélags Bergs-Hugins.
Guðmundur Alfreðsson, viðhaldsstjóri Bergs-Hugins, er nýlega kominn frá Noregi þar sem hann fylgdist grannt með smíði skipanna, en norska skipasmíðastöðin Vard annast smíði þeirra ásamt því að smíða fimm aðra eins togara fyrir íslensk útgerðarfélög.
Guðmundur segir að smíði skipanna gangi samkvæmt áætlun. Skipin eru smíðuð í einingum og fer smíði eininganna fram í Salthammer í Tesfjord en síðan eru þær dregnar á pramma til skipasmíðastöðvarinnar í Aukra þar sem þær eru settar saman. Allri vinnu við gerð skipanna verður síðan lokið í Aukra.
Guðmundur segir að nú sé verið að vinna í vélarrúmseiningu Vestmannaeyjar í Salthammer en smíði þeirrar einingar er flóknust og tímafrekust.
„Skipið er sett saman úr níu einingum og í næstu viku verður lokið við að smíða sjö þeirra í Salthammer. Þrjár þeirra eru komnar til Aukra og lokið við að setja þær saman. Fleiri einingar munu síðan koma til Aukra í næstu viku. Fyrir utan smíðina á Vestmannaey er byrjað að smíða einingar í Bergey. Þetta virðist allt ganga vel.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |