Umdeildar rafmagnsveiðar verði bannaðar

Ska Keller, þingflokksformaður Græna flokksins, sýndi afstöðu sína með skýrum …
Ska Keller, þingflokksformaður Græna flokksins, sýndi afstöðu sína með skýrum hætti. AFP

Evrópuþingið hefur í dag kallað eftir því að nokkurs konar raflínuveiðar innan Evrópusambandsins verði bannaðar, en þær hafa einkum verið stundaðar í Norðursjó. Veiðarnar hafa þótt umdeildar en í þeim felst að straumi er hleypt á línur, sem svo eru lagðar rétt yfir botni sjávar, í því skyni að hrekja sjávardýr af botninum og í troll fiskiskipa.

Kosið var um málið á þinginu í dag og voru 402 hlynntir banninu en 232 því mótfallnir. Fjörutíu til viðbótar sátu hjá.

„Þetta er stórkostlegur sigur gegn ákaflega skaðlegri gerð af veiðum,“ segir Yannick Jadot, franskur þingmaður Græna flokksins, í samtali við fréttastofu AFP.

Reglur Evrópusambandsins heimila ríkjum þess að útbúa allt að fimm prósent fiskiskipaflotans með þessum sérstöku rafskautum og hefur heimildin einna helst verið nýtt af hollenskum útgerðum.

Framkvæmdastjórn ESB vill halda heimildinni til veiðanna í suðurhlutu Norðursjós og afnema takmörkunina sem miðast við 5%. Karmenu Vella, framkvæmdastjóri ESB í sjávarútvegsmálum, hefur sagt raflínuveiðarnar umhverfisvænni en þær hefðbundnu, þar sem þær dragi úr útblæstri kolefnis og skaði sjávarbotninn minna.

Stjórnin og þingið munu því nú þurfa að komast að samkomulagi um hvað skuli gert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »