„Aflabrögðin hafa verið góð og það er ekkert upp á þau að kvarta. Við erum smám saman að læra á nýtt skip og nýjan búnað og hver veiðiferð fer í reynslubankann og færir okkur nær því takmarki að tileinka okkur alla þessa nýju tækni.“
Þetta segir Friðleifur Einarsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Engey RE. Haft er eftir honum á vef HB Granda að yfirstandandi veiðiferð hafi hafist á þorskveiðum í Nesdjúpi. Þar hafi verið tekin tvö hol en aflinn hafi þó ekki verið sérstakur.
Betur hafi gengið í kantinum úti af Halamiðum og góð veiði einnig fengist á Þverálshorninu, áður en haldið var suður til karfaveiða, en þegar náðist í Friðleif var Engey á leið frá Vestfjarðamiðum suður á karfaslóðina fyrir Suðvesturlandi.
„Það er karfi í Víkurálnum en ég kaus að fara beint suður á Fjöllin, okkar heimamið, til að veiða karfann. Við náum þar um sólarhring á veiðum en við eigum að vera í höfn í Reykjavík næstkomandi fimmtudagsmorgun,“ segir Friðleifur.
Friðleifur Einarsson, skipstjóri á Engey.
mbl.is/Eggert
Sjálfvirka lestarkerfið stendur upp úr
Gengið hefur vel að laga sig að hinni nýju tækni sem skipið er búið, að sögn skipstjórans.
„Það er eitt og annað sem komið hefur upp á en sem betur fer ekkert stórvægilegt. Við vitum að það verða einhverjir hnökrar á hinu og þessu til að byrja með en allt eru þetta stillingaratriði sem verða leyst,“ segir Friðleifur.
„Hvað varðar nýjungarnar þá stendur sjálfvirka lestarkerfið upp úr. Þar er um byltingarkennda nýjung að ræða að mínu mati. Þetta er hrein snilld. Skipverjar setja bara fisk í körin og kalla svo tóm kör til sín. Vinna í lest heyrir sögunni til.“