Margir komnir í land eftir verkfall

Línubátur á sjó.
Línubátur á sjó. mbl.is/Ómar Óskarsson

Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins, segir að margir sjómenn hafi ekki snúið aftur á sjó að verkfalli loknu.

„Það eru bara lægri tekjur núna en áður,“ segir Valmundur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. „Gengið er búið að lækka um 30% á einu ári og það bara helst í hendur við tekjur sjómanna og útgerðarmanna.“

Valmundur bætir við að áframhaldandi lágt fiskverð á markaði hjálpi heldur ekki til.

Grindavík og Snæfellsnes

Þá segir hann að ekki liggi fyrir nákvæmar tölur um hversu margir sjómenn hafi ekki snúið aftur til starfa á sjó en hann segir að vandamálið sé víða um land. „Við höfum ekki tölur um hversu margir þetta eru. Ég get ekki gert mér grein fyrir því. Við heyrum þetta alls staðar. Þetta er ekki 30-40% eða neitt þannig, en þetta er einhver hópur,“ segir Valmundur.
„Við heyrum að þetta sé mest í Grindavík og þar sem er línuútgerð, t.d á Snæfellsnesi.“

Hann segir að línubátarnir séu í mesta vandanum en línubátar landa í eigin vinnslur, þar sem fiskverðið er lægra. „Svo eru margir um borð og þá eru tekjurnar bara ekki nægilega góðar.“

Spurður hvort að bátar hafi ekki getað siglt út vegna manneklu segir hann að það hafi ekki gerst.

„Það er ekki komið þannig enn þá en það gengur illa að manna línubátana.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »