sun. 28. apr. 2024 10:23
Sergey Troitsky er einn af stofnendum og bassaleikari Korrozia Metalla. Óvíst er hvort hann sé einn hinna handteknu.
Liðsmenn hljómsveitar handteknir fyrir nasistaáróður

Þrír liðsmenn rússnesku rokkhljómsveitarinnar Korrozia Metalla voru handteknir á tónleikum sínum í gær og ákærðir fyrir að sýna nasistamerki. 

Liðsmennirnir eru 19, 42 og 57 ára gamlir og eru sakaðir um „áróður eða sýningu á munum og táknum nasista“, að sögn lögreglu í borginni Nijni-Novgorod. 

Lögreglumenn handtóku liðsmennina á næturklúbbi í borginni sem er í vesturhluta Rússlands. Stuttermabolir og bækur með merkjum nasista voru gerð upptæk. 

Liðsmennirnir eiga von á sekt eða stuttri fangelsisvist. 

Maria Rounova, liðskona í hljómsveitinni, tjáði ríkisfjölmiðlinum TASS að táknin sem um ræðir væru „gömul slavnesk merki“. 

Á myndum sem deilt var á samfélagsmiðla sjást lögreglumenn ryðjast inn á næturklúbbinn og neyða gesti til þess að leggjast á gólfið. 

 

 

til baka